6.3.2010 | 17:51
Virðing eða vanvirðing
Virðing fyrir fólkinu sínu eða réttara sagt vanvirðing stjórnvalda í garð þjóðar sinnar.Þótt íhald,framsókn og samfylkingin hafi komið fram við þjóðina sína af vanvirðingu síðustu ár þýðir það ekki að VG og Samfylkingin eigi,eða megi, að halda því áfram.Ég er búin að kjósa og kaus auðvitað NEI.
Mín lífsviðhorf breyttust mikið er minn strákur dó.Ég er ekki söm og áður.Hans sjúkdómur breytti okkur öllum sem gengum með honum.Lífið heldur áfram.Bróðir minn sá sem er yngstur í hópi okkar systkina hefur ekki haft það gott síðustu daga.Hann býr í Chile.Concepcion ,og allt er farið af hans veraldlegu eigum.Vatn er af skornum skammti og lítill matur.Við hér uppá Íslandi höfum verið í tilfinningalegum rússíbana í viku.
Núna fyrst lítur það betur út.Guði sé lof.Mörg okkar eru fljót að barma okkur,sum hafa fulla ástæðu til,önnur eru bara kvartsár.Ég hef það svo gott.Hef mat,vatn og húsaskjól.Icesave er til skammar og þeir sem eiga það ber að borga.Ég á ekkert í þessu frekar en flestir í þessu landi.
Ég er að fara að passa 3 vini mína sem eru 10,6 og 4 ára strákar.Hlakka til þess að eiða kvöldinu með þeim.
Að eiga góða að er ómetanlegt.
Hafið það gott 
|
„Við erum fólk en ekki fé“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |





Athugasemdir
Njóttu þess að passa knús til ykkar
Ásdís Sigurðardóttir, 6.3.2010 kl. 17:54
Birna Dís. Stuðningskveðja frá mér.
M.b.kv. Anna
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.3.2010 kl. 18:09
Þú ert gullmoli Birna mín
Eigðu yndislegt kvöld
Praise, 6.3.2010 kl. 18:45
Sæl Birna Dís.
Það er alltaf gott að lesa þig.þó ég kommenti ekki oft.
Já, við lifum á mjög svo viðsjárverðum tímum og svo sannarlega segir þú satt um Icesave, Ég er þér sama sinnis.
Kær kveðja á þig
og alla þína
. 
Þórarinn Þ Gíslason, 7.3.2010 kl. 02:23
Tek svo undir með þér elsku Birna Dís mín.
Kærleik í vesturbæinn
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.3.2010 kl. 19:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.