Óþolandi framkoma.

Hvernig stendur á þessu?Enn og aftur er veiku fólki tilkynnt um að ekkert sé í boði fyrir það.Það virðist vera sama hver sér um heilbrigðismálin hér ,sama viðhorf gagnvart veikum.Sérstaklega andlega veiku fólki og fötluðu.Því minni líkur sem eru á því að viðkomandi geti búið einn og séð um sig sjálfur,því minni hjálp er að fá í "velferðarsamfélaginu"á Íslandi.Þetta er til skammar fyrir alla sem hafa stjórnað þessu landi og gera það nú.Ekkert virðist breytast þótt nýtt fólk fái völd.Angry    þegar ég byrjaði að berjast fyrir því að geðsjúkir fái viðeigandi  hjálp hafa orðið breytingar í ráðuneytinu.Fyrst var framsókn og ekkert var gert,svo var íhald og afar lítið var gert,nú er samfó og hvað er gert???Óþolandi framkoma við veikt fólk.OG þetta er virðingarleysi.

Ég þekki þetta svo sem vel og barðist og barðist við geðheilbrigðiskerfið í 5 ár.Sjúklingurinn fékk ekki hjálp og dó.Eftir að ég fór að vinna með Geðhjálp komst ég að því að þetta var ekki einangrað tilfelli hjá mínum strák ,því miður er þetta saga alltof margra.Það er skömm að þessu ,það er árið 2009 en ekki 209.


mbl.is Lokað á langveika stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA

Þetta er mannskepnan í allri sinni mynd....sorglegt en því miður satt og algengt.

Innilega samúðarkveðjur til þín.

TARA, 3.4.2009 kl. 15:04

2 Smámynd: Margrét Birna Auðunsdóttir

Ég má bara ekki sjá svona fréttir, þá verð ég svo reið að ég tapa mér. Fjandinn hafi það (fyrirgefðu orðbragðið), þetta þjóðfélag okkar er það alaumingjalegasta villimannaþjóðfélag sem finnst. Og það var það líka fyrir kreppu, peningaleysi er engin afsökun.

Margrét Birna Auðunsdóttir, 3.4.2009 kl. 18:35

3 identicon

Við stöndum frammi fyrir álíka máli í minni fjölskyldu þó ekki eins erfiðu. Systir mín rúmlega 30 er með geðsjúkdóm og er fíkill og það eru engin úrræði. Hún kemst inn á Vík bara ef hún hefur verið í afeitrun á Vogi, biðlisti á Hlaðgerðarkot, biðslisti á Krýsuvík, biðlisti á Hvíta bandið, hvað er annað í boði fyrir fólk sem ekki beri nokkuð skynbragð á eigin sjúkdóm, fylgir ekki því sem læknar mæla með og fara ekki eftir neinu sem varðar eigin bata. Á þetta fólk heima úti í þjóðfélaginu, eða þarf að finna úrræði þar sem hægt að er að veita langtímavistun og von um betri bata?

Sorry Birna Dís, ég fór aðeins á flug;-)

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 20:51

4 Smámynd: Birna Dis Vilbertsdóttir

Takk fyrir innlitið öll.Lísa, þetta er svo ljótt að þeir sem eru með geðsjúkdóm og fíkn eru útilokaðir frá allri hjálp.Það er lögbrot að mismuna sjúklingum eftir sjúkdómum.En það virðist ekki breyta neinu,það eru líka mannréttindabrot að gera það.Engin mótmælir því ,þótt það sé að gerast fyrir framan nefið á okkur.Jú reyndar er ég með háfaða en er svo lítil svona ein að ég rétt næ því að vera óþægileg.En á meðan fólk safnast saman og mótmælir mannréttindabrotum í öðrum löndum skeytir það engu um sitt eigið fólk.Og ekki hafa stjórnmálamenn áhuga á þessum málum.Sama hvar í flokki menn eru.Þöggun er í gangi gagnvart þessum hópi og aðstandendum þessa hóps. Ég gæti gargað.Ef við veðum vitni að því að mannréttindi eru brotin eigum við að hrópa og kalla svo hlustað verði á okkur,sama í hvaða landi brotið er.Missti mig líka en það er ok

Birna Dis Vilbertsdóttir, 3.4.2009 kl. 23:03

5 Smámynd: Auður Proppé

Þetta er hræðilegt Birna mín, takk fyrir að benda á þessa frétt.  Ég verð svo reið þegar ég sé svona framkomu við fólk sem þarf mest á hjálp að halda.  Það virðist vera alveg sama hvaða stjórnmálaflokkur er við völdin, ekkert er gert.  Enginn sem vill sjá þetta, því fatlað og fólk með geðsjúkdóma á erfitt með að berjast fyrir sínum rétti.

Auður Proppé, 4.4.2009 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband